Bjarmi, gleðilegar jólaseríur fyrir íslenskt veðurfar
Í gamla daga, þegar veður voru vond og hríðarbyljir hristu bæjarhúsin, voru kerti sett í baðstofugluggann til að aðstoða þá sem voru úti. Úr fjarska sást ekki loginn sjálfur, heldur aðeins hlýr bjarmi í gegnum kófið, bjarmi sem ýtti myrkrinu í burtu. Í dag notum við rafmagnsljós til að gefa þennan hlýja bjarma. Þegar það er sem dimmast kveikjum við jólaljósin og njótum bjarmans frá þeim í svartasta skammdeginu.
Við köllum jólaseríurnar okkar “Bjarma”. Þettta eru alvöru útiseríur fáanlegar með IP65 vottun. Kapalinn er þykkur gúmmíkapall, einn sá þykkasti sem settur er á jólaseríur. Vírar og allur frágangur er eins og best verður á kosið enda fá útiseríur ekki IP65 vottun nema þær séu alvöru útiseríur. Perurnar eru höggþolnar og þola vel íslenskt vetrar veður. Bjarmi IP65 jólaseríurnar eru jólaseríur sem endast.

Útiseríur IP44 og útiseríur IP65 – hver er munurinn
Áður fyrr voru flestar útiseríur með IP44 vatnsvörn. Það þýðir að serían er varin fyrir hlutum sem eru stærri en 1mm og fyrir vatnsúða. Vírinn í þessum seríum er almennt þunnur og þolir ekki mikil átök.

Í dag kaupa sífellt fleiri jólaseríur með IP65 vatnsnvörn. IP65 þýðir að serían er alveg varin fyrir ryki og þolir vatnsúða undir þrýstingi.
Yfirleitt eru IP65 seríur búnar til úr þykkum vír sem þolir mikil átök. IP65 seríur eru tilvaldar til að hafa uppi allt árið um kring – ef vel er gengið frá festingum. Bjarmi með IP65 vatns- og veðurvörn eru framleiddar með sterkum gúmmí kapli sem er einn sá þykkasti sem hægt er að fá. Með því að velja Bjarma þá ertu komin með vandaða útiseríu sem þolir íslenskt veðurfar.
Þó IP65 jólaseríur séu með mun betri vatnsvörn in IP44 seríur, þá þola þær ekki að liggja á kafi í vatni í langan tíma. Þannig þola þær vel að vera í trjám, þakskeggi og á veggjum þar sem vatn rennur af þeim. Ekki er mælt með að nota þær t.d. niður við jörð þar sem vatn getur safnast fyrir.
Sama á við um samtengin. Ef þú kemst ekki hjá því að láta samtengin liggja á jörðinni, þá er sniðugt að nota svokallaða „krumpuhólka“ til að vantsverja samtengin 100% eða notað hlífðarbox fyrir samtengi sem þú getur skoðað [hér]
Talandi um samtengi þá færð þú mikið úrval af tengjum og splitterum fyrir IP65 jólaseríurnar hjá okkur. Skoðaðu samtengin [hér]
Veldu vandaðar jólaseríur frá Múrbúðinni þessi jól og njóttu þeirra mörg næstu ár.

https://murbudin.is/bjarmi-jolaseriur/Skoðaðu úrvalið af jólaseríum [hér]
Verð sem kemur þægilega á óvart! Lang hagstæðasta verðið á IP65 útiseríum á íslandi. Gerðu verðsamanburð!
Frá upphafi hefur Múrbúðin boðið mun lægri verð en Íslendingar eru vanir. Jólaseríurnar eru engin undantekning. Kíktu á verðið og láttu það koma þér þægilega á óvart. Smelltu [hér]
Múrbúðin – Gleðileg jól fyrir alla – Alltaf! og alltaf á góðu verði!

